Fréttir

Góður og fjölsóttur fyrirlestur Guðbrands Árna Ísberg

Áhugasamir áheyrendur.
Áhugasamir áheyrendur.

Þriðji mánaðarfyrirlestur Íslenskrar ættleiðingar „Í nándinni – innlifun og umhyggja“ var haldinn 29. apríl sl. í Tækniskólanum í Reykjavík.  Fyrirlesari var Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur.  Hann kynnti m.a. efni úr nýútkominni bók sinni  “Í nándinni - innlifun og umhyggja“.  Auk þess lagði hann áherslu á mikilvægi þess að foreldrar séu meðvitaðir um skömmina og áhrif hennar á sjálfsálit barna því gott sjálfsálit er nátengt hamingju á fullorðinsárum.  Fyrirlesturinn var mjög vel sóttur.  Sérstaklega ánægjulegt var að sjá hve margir sem ekki áttu heimangengt fylgdust með fyrirlestrinum á netinu.  Almenn ánægja var með Guðbrand Árna og fyrirlesturinn hans.  Í kjölfar hans urðu líflegar, gagnlegar og uppbyggilegar umræður. Íslensk ættleiðing þakkar Guðbrandi Árna fyrir hans framlag og öllum þeim sem mættu á fyrirlesturinn eða fylgdust með honum á netinu.  Við hvetjum fólk eindregið til að lesa bók Guðbrands Árna „Í nándinni – innlifun og umhyggja“.

 


Svæði