Fréttir

Hamingjustund

Hafþór, Anna Karólína og Líney
Hafþór, Anna Karólína og Líney

Í dag sameinaðist lítil fjölskylda í Tékklandi.
Hafþór og Líney fóru á vit ævintýranna til að hitta dóttur sína. Það var stórkostlegasti dagur í lífi þeirra Hafþórs og Líneyjar þegar þau hittu Önnu Karólínu í fyrsta sinn.
Dagurinn byrjaði á því að hitta starfsmenn barnaheimilisins og fá helstu upplýsingar en svo fóru þau inní leikherbergið til hennar þar sem hún var að dunda sér. Það var erfitt að halda aftur af tárunum því biðin eftir þessari stund hefur verið löng…en vel þess virði.

Umsókn Hafþórs og Líneyjar var samþykkt af yfirvöldum í Tékklandi 20. október 2014 og voru þau pöruð við Önnu Karólínu 18. maí 2015. Þau voru því á biðlista í Tékklandi í sjö mánuði.

Þetta er níunda fjölskyldan sem sameinast með milligöngu Íslenskrar ættleiðingar á þessu ári og börnin orðin 11. Nú hafa 22 börn verið ættleidd frá Tékklandi til Íslands.


Svæði