Fréttir

Hamingjustund

Tinna, Brynjar, Kristján og Kristín
Tinna, Brynjar, Kristján og Kristín

Í nótt hittu þau Brynjar og Kristín dóttur sína í fysta sinn. Þau fóru ásamt Kristjáni Bjarti stóra bróður til Kína að hitta hana og nú var loks komið að því. Litla Skellibjallan hún Tinna Bergdís var róleg og yfirveguð þegar hún hitti þau. Hún horfði á þau í rólegheitunum og tók þau út, það var greinilegt að hún var sátt við fjölskylduna og sér í lagi stóra bróðir sem hún fór strax að leika við. Rólegheitin stóðu þó stutt yfir því hún er full af fjöri og vill hafa stanslausan glaum og gleði í kringum sig.

Umsókn Brynjars og Kristínar var móttekin af yfirvöldum í Kína 24. apríl 2014 og voru þau pöruð við Tinnu 5. maí 2015. Þau voru því á biðlista í Kína í rúmt ár.

Þetta er 11 fjölskyldan sem sameinast með milligöngu Íslenskrar ættleiðingar á þessu ári en börnin eru orðin 15. Nú hafa 180 börn verið ættleidd frá Kína til Íslands.


Svæði