Íslensk ættleiðing flytur / Ráðstefna og sumarfrí
Skrifstofa Íslenskrar ættleiðingar er flutt í Mannréttindahúsið, Sigtúni 42 og hlakkar til að vera þar í samfloti með yfir 40 félagasemtökum en 13 önnur félög eru einnig að færa starfsemi sína þangað. Þau eru: Almannaheill, ADHD samtökin, Auðlesið, Átak, Barnaheill, Börn með krabbamein, CP félagið, EAPN á Íslandi, Neistinn, PCOS samtök Íslands, Sjónarhóll, TMF og Umhyggja.
Dagana 6. -10. júlí sækja framkvæmdastjóri ÍÆ og sérfræðingur ráðstefnuna ICAR-9 (International Conference on Adoption Research) í Porto í Portúgal. Ráðstefnan er haldin á tveggja ára fresti og ber að þessu sinni yfirskriftina The Changing Landscape of Adoption: Research and Practice. Það er félaginu mikilvægt að fylgjast með því sem er í gangi í heimsmálum ættleiðinga og þeim rannsóknum sem eru í gangi á hverjum tíma.
Eftir það tekur við sumarfrí og verður skrifstofan því lokuð í einn mánuð.
Íslensk ættleiðing hlakkar til að taka á móti félagsmönnum og öðrum sem eiga erindi á nýjum stað, Mannréttindahúsinu, á degi sólmyrkvans þann 12. ágúst en alltaf er hægt að hafa samband í tölvupósti í millitíðinni og brýnum erindum er ávallt sinnt eins og verið hefur.

Fylgdu okkur á Instagram