Fréttir

Jólaball Íslenskrar ættleiðingar 11.desember

Jólaskemmtun fyrir alla fjölskylduna þann 11. desember 2022 kl. 14:00 - 16:00 á Hótel Natura, Nauthólsvegi 52, 101 Reykjavík.

Gleðin verður í sal 2, sem er staðsettur í suðurvæng hússins, eða til vinstri þegar maður kemur að húsinu.

Jólasveinar láta sjá sig og við syngjum og dönsum saman í kringum jólatré við skemmtilegt undirspil.
Veitingar eru innifaldar í verðinu og það er aldrei að vita hvað Sveinki verður með í pokanum sínum.

Það kostar aðeins 1800 krónur fyrir félagsmenn og 600 krónur fyrir börn þeirra, en fyrir þá sem ekki eru félagsmenn kostar 3500 kr á mann.

Allir velkomnir - börn og foreldrar, ömmur og afar, frændur og frænkur og allir hinir.

 

*síðasti skráningardagur er 7.desember


Svæði