Fréttir

Kaffi og kærleikur með forseta Íslands

Félagsmönnum Íslenskrar ættleiðingar er boðið að njóta kaffis og kærleiks með forseta Íslands, frú Höllu Tómasdóttur, fimmtudaginn 26. nóvember klukkan 16.30. Þetta verður í fyrsta sinn sem ÍÆ heldur viðburð í nýju húsnæði í Mannréttindarhúsinu, Sigtúni 42, og erum við full tilhlökkunar að hefja okkur fyrstu spor á nýjum stað í frábærum félagsskap forsetans og ættleiddra barna og fjölskyldna þeirra.
Stutt kynning verður á málaflokknum, sagðar reynslusögur og Bergmál syngur nokkur lög. 

Skráningu lýkur þriðjudaginn 24. nóvember og fer fram HÉR.


Svæði