Fréttir

Pressan.is - 11 ára og æfir 21 klukkustund á viku

Guðrún Edda 11 ára
Guðrún Edda 11 ára

Það gustar krafur af afreksíþróttastelpunni Guðrúnu Eddu Harðardóttur sem einnig ber með sér mikla og jarðtengda ró. Þrátt fyrir ungan aldur mætir Guðrún Edda á fimleikaæfingar í 21 klukkustund á viku. Hún setur markið hátt og finnst fátt jafn skemmtilegt og að ná markmiðum sínum.

„Mér finnst rosalega gaman að æfa fimleika og þá sérstaklega þegar ég læri eitthvað nýtt og byrja að keppa með það. Til dæmis ef ég er búin að æfa eitthvað lengi og svo tekst mér það allt í einu. En svo á ég líka mikið af góðum vinkonum í fimleikunum sem gera æfingarnar ennþá skemmtilegri.“

Enda hefur Guðrún Edda ekki mikinn tíma aflögu fyrir utan skóla og æfingar og þá er gott að geta slegið tvær flugur í einu höggi og eytt tíma með vinkonum á meðan á æfingum stendur.

„ Það skemmtilegasta sem ég geri er að æfa fimleika og að leika við vinkonur en ég get bara leikið við vinkonur eftir æfingar á laugardögum og á sunnudögum þegar það er frí frá æfingum. Þess vegna er mjög gott að flestar vinkonur mínar æfa líka fimleika. Annars myndi ég hitta þær sjaldnar.

Guðrún Edda segist huga vel að öðrum heilsutengdum þáttum eins og til dæmis mataræði

„ Ég borða hollan og góðan mat, til dæmis borða ég alltaf hafragraut á morgnana. En fyrst og fremst þarf ég að borða mikinn mat til þess að hafa næga orku fyrir æfingarnar. “ 

Maður skyldi ætla að þegar börn æfa jafn mikið og Guðrún Edda sé mikil hætta á slysum eða meiðslum en hún þvertekur fyrir slíkt.

„Ég hef bara einu sinni tognað á fæti og einu sinni puttabrotnað. Annars hef ég bara ekkert slasað mig. Mesta hættan er á álagsmeiðslum ef maður æfir of mikið. Ég hef verið alveg laus við slíkt nema einstaka sinnum finn ég aðeins til í hælnum. “

12961306_10207841376405776_376068744298302491_o

Guðrún Edda keppir á slá

Guðrún Edda kippir sér sem sagt ekki upp við smávægileg meiðsl enda algjör nagli sem veit nákvæmlega hvað hún vill og hvert hún stefnir.

„Mig langar til þess að verða afrekskona í íþróttum, hvort sem það verður í fimleikum eða kannski hlaupum. Ég hef tekið þátt í mörgum svona útihlaupum og mér hefur gengið vel í þeim. “ 

Aðspurð að lokum hvort hún sjái þá fyrir sér Ólympíuleikana í framtíðinni fer hún pínu hjá sér og segir svo:

„…. eh ég veit það nú ekki alveg. Sjáum til, manni langar það auðvitað! “

Pressan.is - 11 ára og æfir 21 klukkustund á viku


Svæði