Fréttir

Ráðgjöf í tengslum við mál- og talþroska ættleiddra barna

Ingibjörg Símonardóttir, sérkennari og talmeinafræðingur, býður félagsmönnum Íslenskrar ættleiðingar ráðgjöf í tengslum við mál- og talþroska ættleiddra barna.

Ingibjörg hefur aðstöðu til þjónustunnar í húsnæði Íslenskrar ættleiðingar í Austurveri. Hægt er að koma í viðtal til hennar þar eða hringja og fá símaviðtal.

Ingibjörg er með viðtölin á hálfs mánaðar fresti. Í fyrsta sinn á þessu ári fimmtudaginn 21. janúar klukkan 11 til 13.30 og næst að tveimur vikum liðnum fimmtudaginn 4. febrúar á sama tíma dagsins.

Panta þarf viðtal með fyrirvara á netfangið ingibjorgsim@internet.is


Svæði