Ráðstefna EurAdopt á Möltu 15. - 16. apríl 2026
25.04.2026
Stjórn EurAdopt sendi frá sér meðfylgjandi yfirlýsingu og samantekt frá ráðstefnunni (sjá að neðan) en í henni er m.a. lögð áhersla á eftirfarandi:
-Rannsóknir sýna að alþjóðleg ættleiðing er kostur fyrir börn til að eignast fjölskyldu svo þau þurfi ekki að alast upp á stofnun (áætlað er að um 20% barna í heiminum sem eru á stofnun þurfi á alþjóðlegri ættleiðingu að halda á meðan 80% fá ættleiðingu eða fóstur í heimalandi sínu)
-Að halda áfram með jákvæðu hugarfari um framtíð alþjóðlegra ættleiðinga en taka tillit til þeirra mála sem upp hafa komið og sífellt reyna að gera betur
-Ættleiðing er ævilangt ferli og auka þarf stuðning við alla í ferlinu og út lífið
-Mikilvægi þess að allar raddir tengdar ættleiðingum heyrist og að þekkingu sé viðhaldið
Fjöldi fyrirlesara tóku þátt og ráðstefnugestir voru yfir 100. Meðal fyrirlesara voru t.d. nokkrir uppkomnir ættleiddir með ólíkar sögur að segja, aðilar sem hafa rannsakað ættleiðingar frá ýmsum hliðum, aðilar sem vinna með upprunaferðir og ýmis konar stuðningsúrræði og rannsóknir á ættleiðingum fyrri tíma þar sem fram kom m.a. að ýmsir annmarkar voru á rannsóknaraðferðum. Einnig voru nokkrar vinnustofur haldnar sem gagnast geta þeim sem vinna með ættleiddum.
Íslensk ættleiðing hefur unnið að því lengi að reyna að tryggja að fjölskyldur og börn fái viðeigandi þjónustu svo þeim farnist vel eftir ættleiðingu en lítið fjármagn hefur fengist til að þetta sé mögulegt. Ljóst er að, auk milligöngu, þarf bæði endurskipuleggja og - fjármagna það sem snýr að stuðningi við börn og fjölskyldur eftir heimkomu, sem og við uppkomna ættleidda og fjölskyldur þeirra.



Fylgdu okkur á Instagram