Fréttir

Spjallkvöld um fagbækur, sem tengjast ýmsum hliðum ættleiðingarinnar

PAS-nefnd minnir á spjallkvöld sem haldið verður 20. september 2011 kl. 20.00 í húsnæði Í.Æ. Umræðu efni kvöldsins verða bækur sem tengjast ættleiðingum. Mörg eigið þið góðar bækur sem tengjast hinum ýmsu hliðum ættleiðingarinnar og hvetjum við ykkur til að taka þær með á bókaspjall.

Snjólaug Sigurðardóttir stýrir umræðunni fyrir hönd nefndarinnar.

Hægt verður að taka þátt í gegnum skype. Gott er að safnast saman í þéttbýliskjörnum á langsbyggðinni og tengjast í gegnum skype, taka þátt í umræðunum og eiga saman skemmtilega kvöldstund.

Stefnt er að því að hópur verði á Akureyri.

Sendið póst á netfangið pas@isadopt.is ef þið hafið áhuga á að taka þátt í gegnum skype.

 

 


Svæði