Fréttir

Stjórnarfundur 09.03.2010

Stjórnarfundur 9. mars 2010

Fundur stjórnar Íslenskrar ættleiðingar þriðjudaginn 9. mars 2010, kl. 20

X. fundur stjórnar

Mættir:

Ágúst Guðmundsson
Hörður Svavarsson
Karl Steinar Valsson
Margrét Rósa Kristjánsdóttir
Pálmi Finnbogason
Vigdís Ósk Sveinsdóttir

Kristinn Ingvarsson framkvæmdastjóri ÍÆ sat einnig fundinn.

Fundurinn hófst á því að fundarmenn fóru yfir síðustu fundargerð og samþykktu hana.

Mál á dagskrá:
1. Aðalfundur
2. Sérstök rannsóknarskylda sýslumannsins í Búðardal í kjölfar bankahruns
3. Önnur mál

1. Aðalfundur
Aðalfundur félagsins er fyrirhugaður 25. mars 2010. Framboðsfrestur til stjórnar ÍÆ rennur út næstkomandi fimmtudag kl. 20. Óskað er eftir 4 fulltrúum í stjórn ÍÆ. Fyrirhugaðar eru 3 lagabreytingar sem birtar verða á heimasíðu félagsins.

2. Skýrsla félagsráðgjafa.
Skýrsla félagsráðgjafa lögð fram en hún var unnin 1. jan. – 1. júní 2007. Fyrirhugað er að skýrslan verði birt á heimasíðu félagsins.

3. Önnur mál.
Rætt um heimasíðuna. Ákvörðun tekin um að funda sem fyrst með þeim þremur aðilum sem buðu sig fram til aðstoðar við hönnun á nýrri heimasíðu félagsins.

Fundi slitið kl. 22

Vigdís Ó. Sveinsdóttir fundarritari

 


Svæði