Fréttir

Stjórnarfundur 19.03.2019

Stjórnarfundur Íslenskrar ættleiðingar, þriðjudaginn 19.mars  kl. 20:15 í húsnæði félagsins að Skipholti 50b.  

Mætt: Ari Þór Guðmannsson, Elísabet Hrund Salvarsdóttir, Magali Mouy, Lísa Björg Lárusdóttir og Sigrún Eva Grétarsdóttir.

Einnig sat fundinn Kristinn Ingvarsson framkvæmdastjóri.

Dagskrá stjórnarfundar   

  1. Fundargerð aðalfundar
  2. Fundargerð síðasta stjórnarfundar  
  3. Verkaskipting stjórnar
  4. EurAdopt
  5. NAC ráðstefna í september
  6. Stefnumótun félagsins  
  7. Dóminíska lýðveldið
  8. Önnur mál 

1. Fundargerð aðalfundar  
Fundargerð samþykkt.

2. . Fundargerð síðasta stjórnarfundar 
Fundargerð samþykkt.

3. Verkaskipting stjórnar
Elísabet Hrund  fráfarandi formaður óskar eftir því að sinna embættinu áfram, samþykkt af fundarmönnum. Ingibjörg Valgeirsdóttur verður áfram varaformaður stjórnar. NAC aðalfulltrúi verður áfram Elísabet og varafulltrúi Ingibjörg. EurAdopt aðalfulltrúi verður áfram Ingibjörg en Sigrún Eva tekur sæti varafulltrúa í stað Elísabetar.  

4. EurAdopt  
Gögn frá EurAdopt lögð fram og rædd.

5. NAC ráðstefna í september
Boðaður verður fundur vegna skipulagningar á NAC ráðstefnu í næstu viku. Klára þarf dagskrá ráðstefnunnar.

6. Stefnumótun félagsins
Formaður leggur til að stjórn og starfsmenn félagsins hafi starfsdag til að fara yfir stefnumótun félagsins. Hvetur alla til að velta fyrir sér hvernig við viljum sjá félagið eftir 5 ár.

7. Dóminíska lýðveldið
Óskað hefur verið eftir löggildingu með bréfi til Dómsmálaráðuneytisins.

8. Önnur mál
a. Ný stjórn - Framkvæmdarstjóri hefur sent tilkynningu um nýja stjórn á Dómsmálaráðuneytið. 

b. Fræðsla  – Formaður segir frá erindi sem hún var með á kaffihúsahittingi í Endómetríósu vikunni, sem foreldri tveggja ættleiddrar barna.  Einnig frá viðtali sem nemi í fjölmiðlafræði tók við hana um ættleiðingu.  

Fundi lokið kl. 21:45


Svæði