Stjórnarfundur 22.11.2011
Stjórnarfundur 22. nóvember 2011
Fundur stjórnar Íslenskrar ættleiðingar þriðjudaginn 22. nóvember 2011 kl. 20:00
Mættir:
Anna Katrín Eiríksdóttir
Ágúst Hlynur Guðmundsson
Árni Sigurgeirsson
Elín Henriksen
Jón Gunnar Steinarsson
Hörður Svavarsson
Vigdís Ósk Sveinsdóttir
Mál á dagskrá:
1. Fundargerð seinasta fundar
2. Styrktarsjóður
3. Indland og styrkir þangað
4. Vikuskýrslur
5. Önnur mál
1. Fundargerð seinasta fundar
2. Styrktarsjóður
Samkvæmt samþykktum hins nýstofnaða félags, Icelandic Adoption Support, skal stjórn ÍÆ velja tvo aðila í stjórn styrktarfélagsins og varamenn fyrir þá báða. Gjaldkeri ÍÆ tekur sæti í stjórn félagsins samkvæmt samþykktum. Stjórn ÍÆ mun svo tilnefna tvo aðra meðlimi og varamenn fyrir hvern þeirra.
3. Indland og styrkir þangað
Anju hafði samband við framkvæmdastjóra ÍÆ. Fram til apríl 2012 er heimilt að senda peninga til ættleiðingarfélaga á Indlandi. Á reikningum ÍÆ eru fjármunir sem sérstaklega eru merktir Indlandi. Kristinn leggur fram bréf af J. Pati sem Anju á Indlandi hafði milligöngu um að senda. Í gegnum þessa opnu leið samþykkir stjórn að senda þá fjármuni sem eyrnamerktir eru Indlandi út til Anju. Um er að ræða 3.406.429 kr. sem fara beint til Anju. Styrktarsjóður Indlands er 1.215.964 kr. Þessir fjármunir verða sendir til Anju við fyrsta tækifæri.
4. Vikuskýrslur
Stjórn fer yfir vikuskýrslu framkvæmdastjóra.
Rússland. Samningaumleitanir í gangi. Málin tefjast á því að Rússarnir vilja setja það í samning að þeir vilji hafa eftirfylgni sjálfir með börnunum eftir að heim er komið. Össur Skarphéðinsson mun fara út í þessum mánuði til að ræða um þessi mál. Ráðuneytið mun vera að vinna í því að koma samningnum á.
5. Önnur mál
Stjórn mun skipta með sér verkum á næsta fundi.
Fundi slitið kl. 21:00.
Vigdís Ó. Sveinsdóttir fundarritari