Fréttir

Stjórnarfundur 24.01.1980

Fundur stjórnar 24.1.'80

Rætt var um fyrirhugað heimboð Hollis. Gylfi Guðmundsson hringdi í Hollis í vikunni, 21-28. jan. og spurðist frétta af Indlandsmálinu. Hollis tjáði honum að ekkert hefði heyrst frá Indlandi í lengri tíma og m.a. hefði Danadopt ekki frétt neitt heldur. Hann sagðist hafa fullan hug á að snúa sér að Mauritius eyjum og hefði reyndar þegar sent þangað fyrirspurnarbréf. 
Stjórnin ákvað að kanna endanlega og til þrautar Kóreuleiðina og fara á fund Péturs Thorsteinssonar, sendiherra, og biðja hann ásjár í málinu, næst þegar hann færi til Kóreu.

Farið var á fund Péturs 31.1.'80 og lofaði hann að hafa samb. við ísl. konsúlinn í Seoul og biðja hann að athuga allar aðstæður. Einnig skrifaði stjórnin konsúlnum bréf.

Guðrún H. Soderholm.


Svæði