Fréttir

Stjórnarfundur 25.06.2009

Fundur í stjórn Íslenskrar ættleiðingar miðvikudaginn 25. júní 2009, kl. 12.00
 
Mættir:
 
Ágúst Guðmundsson
Hörður Svavarsson
Finnur Oddsson
Guðbjörg Grímsdóttir
Karl Steinar Valsson
Vigdís Ósk Sveinsdóttir
 
Guðrún Sveinsdóttir sat einnig fundinn.
Fundurinn hófst á því að fundarmenn fóru yfir síðustu fundargerð og samþykktu hana.  
 
Mál á dagskrá:
 
  1. Húsaleigusamningur
  2. Nepal
  3. Innheimta félagsgjalda
  4. Önnur mál
 
1.      Húsaleigusamningur
Stjórnarmenn skrifuðu undir nýjan húsaleigusamning og ákveðið var að flytja starfsemina í hið nýja húsnæði að Austurveri í fyrstu viku júlímánaðar.
 
2.      Nepal
Lagðar voru fram upplýsingar frá skrifstofustjóra okkar um nýjar forsendur í samkomulagi við tengilið okkar í Nepal. Ákvörðun tekin um að Guðrún hafi samband við önnur ættleiðingarfélög á norðurlöndunum og fái upplýsingar þar um hvernig málum þar sé háttað um samskipti við tengiliði í Nepal.
 
3.      Innheimta félagsgjalda
Lagt fram minnisblað frá gjaldkera og formanni um fyrirkomulag innheimtu.  
 
4.      Önnur mál
Rætt um undirbúning að námskeiði sem stefnt er að verði haldið í ágúst.
 
Fundi slitið kl. 13.00

Svæði