Fréttir

Stjórnarfundur 27.04.2020

Stjórnarfundur Íslenskrar ættleiðingar, mánudaginn 27.apríl  kl. 20:30 í gegnum fjarfundarbúnað 

Mætt: Ari Þór Guðmannsson, Elísabet Hrund Salvarsdóttir, Lísa Björg Lárusdóttir, Magali Mouy og  Sigurður Halldór.

Einnig tók Kristinn Ingvarsson framkvæmdastjóri þátt í fundinum.                   

Dagskrá stjórnarfundar  

  1. Fundargerð síðasta stjórnarfundar   
  2. Askur
  3. Aðalfundur ÍÆ
  4. Ársreikningur 2019
  5. NAC & EurAdopt
  6. Önnur mál  

1. Fundargerð síðasta stjórnarfundar 
Fundargerð samþykkt.

2. Askur
Farið yfir gögn í Aski, stjórn hvött til þess að koma með tillögur að breytingum og hverju er hægt að bæta inn. Rætt um stöðu mála á skrifstofunni í núverandi ástandi.

3. Aðalfundur ÍÆ
Fyrirhuguðum aðalfundi 19.mars var aftur frestað 6.apríl síðastliðinn til 25.maí. Tökum stöðuna í maí í samræmi við tilmæli almannavarna.

4. Ársreikningur 2019
Aðeins rætt um ársreikningi, stjórn mun samþykkja hann á næsta fundi þegar ársskýrsla er líka tilbúin.

5. NAC & EurAdopt
Farið yfir stöðu mála, búið er að fresta ráðstefnu EurAdopt sem átti að vera í maí 2020 til vors 2021, ekki komin endanleg dagsetning. Ekki er búið að taka ákvörðun hvort Members Meeting hjá Nac verði í Osló 11.september 2020. Formaður heldur stjórn upplýstum um breytingar.

6. Önnur mál
a. Erasmus
Komið hefur ábending að líklega væri hægt að sækja um styrk hjá Erasmus vegna barna- og unglingastarf. Skrifstofa skoðar málið. 

b. Kærumál
Framkvæmdarstjóri fer yfir stöðu nokkurra mála hjá sýslumanni, skoða þarf yfir þær synjanir sem hafa verið að koma, virðist ekki vera samræmi í afgreiðslumála. Stofnaður hefur verið vinnuhópur til að fara allar niðurstöður sýslumanns síðustu ára. Í þeim hópi verða Rut, Lísa, Berglind Glóð og Kristinn.

Næsti fundur þriðjudaginn 19.maí  kl. 20:30


Svæði