Fréttir

Stjórnarfundur 9. október 2019

Stjórnarfundur Íslenskrar ættleiðingar, miðvikudaginn 9.október  kl. 20:30 heima hjá framkvæmdarstjóra félagsins.  

Mætt: Elísabet Hrund Salvarsdóttir, Ingibjörg Valgeirsdóttir og Lísa Björg Lárusdóttir.
Sigurður Halldór Jesson tók þátt í gegnum fjarfundarbúnað.

Einnig sat fundinn Kristinn Ingvarsson framkvæmdastjóri.

Dagskrá stjórnarfundar   

  1. Fundargerð síðasta stjórnarfundar   
  2. Mánaðarskýrsla
  3. NAC ráðstefna 
  4. Tógó 
  5. Barna – og unglingastarf 
  6. Fræðsluáætlun
  7. 6 mánaða uppgjör
  8. Viðbragðssjóður
  9. Önnur mál  
    Ráðstefnan Breytingar í þágu barna.
    Persónuverndarlög.

1. Fundargerð síðasta stjórnarfundar  
Fundargerð samþykkt.

 2. Mánaðarskýrsla september
Skýrsla rædd.

3. NAC ráðstefna 
Formaður fer yfir ráðstefnuna sem var í september, mikil ánægja var með skipulag og nútímavæðingu á ráðstefnunni. Mikið hrós hefur komið frá þáttakendum. Stjórn vil sérstaklega þakka formanni og starfsmönnum skrifstofu fyrir að vel unnin störf í tengslum við ráðstefnuna.  

4. Tógó
Staða í Tógó rædd.

5. Barna – og unglingastarf
Verið að leita að húsnæði fyrir námskeiðið, verður frestað fram yfir áramót.

6. Fræðsluáætlun
Minnisblað vegna fræðslu og skemmtun rætt.

7. Sex mánaða uppgjör
Formaður fer lítillega yfir 6 mánaða uppgjör. Búið að senda uppgjör á DMR.

8. Viðbragðssjóður
Formaður og framkvæmdarstjóri óska eftir því að Lísa Björg aðstoði við að útbúa úthlutunarreglur vegna viðbragðssjóðar. 

9. Önnur mál
1. Ráðstefna í þágu barna.
Formaður segir frá ráðstefnu fé­lags- og barna­málaráðherra, Breytingar í þágu barna. Starfsmenn skrifstofu og formaður tóku þátt í ráðstefnunni og vinnustofu í tengslum við hana. 

2. Persónuverndarlög
Staða vegna persónuverndarlaga rædd. 

Fundi lokið 22:15

Næsti fundur miðvikudaginn 13.nóvember kl. 20:30


Svæði