Fréttir

visir.is - Ættleidd börn verða frekar fyrir aðkasti í skólakerfinu

 Ættleidd börn fá frekar aðskilnaðarkvíða en önnur börn og verða frekar fyrir aðkasti í skólakerfinu, en einnig á fullorðinsárum þegar þau fara út að skemmta sér. Þetta kemur meðal annars fram í rannsókn um líðan fullorðinna ættleiddra Íslendinga. Efla þarf fræðslu í samfélaginu, segir rannsakandinn, sem sjálf er ættleidd frá Indlandi.

Íslensk ættleiðing fagnar fjörutíu ára afmæli um þessar mundir og hélt af því tilefni málþing í dag. 

Þar kynnti Hildur Ósk Gunnlaugsdóttir, meistaranemi í klínískri sálfræði við Háskólann í Reykjavík, rannsókn sína á líðan fullorðinna ættleiddra Íslendinga en hún er sjálf ættleidd frá Indlandi.

120 ættleiddir einstaklinga á aldrinum átján til 45 ára tóku þátt í rannsókninni og voru þættir eins og tengslamyndun, aðskilnaðarkvíði, lífsánægja, þunglyndi og kvíði skoðaðir. 

„Og þau eru að koma út hærri en aðrir á aðskilnaðarkvíða og varðandi óörugga tengslamyndun - svona kvíðatengsl sem þau mynda við þá sem þau eiga í nánum samböndum við.“

Einnig kom í ljós að margir ættleiddir hafi orðið fyrir einelti og aðkasti í æsku og þá reynslu hefur Hildur sjálf. 

„Það var mjög mikið einelti þegar ég var í grunnskóla. Fólk leyfir sér að segja ýmislegt og kalla að manni ýmislegt sem maður myndi ekki segja við annað fólk. Eiginlega allir sem töluðu um að hafa orðið fyrir aðkasti á djamminu, þegar fólk var komið í glas leyfði fólk sér að segja ótrúlega hluti.“

Rannsókn Hildar er ekki lokið og verða alls kyns áhrifaþættir skoðaðir nánar. Hildur segir þó greinilegt að það vanti meiri fræðslu um ættleidd börn í leik- og grunnskólum.

visir.is - Ættleidd börn verða frekar fyrir aðkasti í skólakerfinu

 


Svæði