Tónleikar í Hörpu sunnudaginn 3.júní kl:19:00
Kínverska sendiráðið býður börnum ættleiddum frá Kína og fjölskyldum þeirra á tónleika í Hörpu, norðurljósasal, sunnudaginn 3. júní frá kl 19:00 – 20:45.
Tilefni tónleikanna er Silkivegurinn “Silk road” en auk sögulegrar tilvísunar er það tilvísun í eitt stærsta menningarverkefni Kína í dag "One Belt One Road Initiative"
Ekki er mælt með því að taka með börn yngri en 6 ára.
Það er enginn aðgangseyrir en nauðsynlegt er að skrá sig á tónleikana fyrir föstudaginn 1. júní.
Sýna þarf boðsbréfið við inngöngu.