Fáðu fréttir og tilkynningar frá ÍÆ á netfangið þitt.
Flýtilyklar
Fréttir
Vísir.is - Smakkaði snjó í fyrsta skipti
30.03.2017
Við hittumst í júní og við smullum saman, það er eitthvað sem er svo líkt með okkur að það var bara eins og við hefðum alltaf þekkst. Ætli það sé ekki sama nördagenið í okkur báðum. Ég stakk upp á því að hún kæmi til íslands, hún er að læra jarðfræði og hvergi áhugaverðara að vera en á Íslandi þegar kemur að því. Henni leist bara vel á það, þrátt fyrir að hafa aldrei stigið uppí flugvél áður,“ segir Brynja Dan Gunnarsdóttir, spurð út í það hvernig það kom til að systir hennar, Dilmi, kom í heimsókn til Íslands.
Lesa meira
Fjórar leiðir til barnaláns
24.03.2017
Bakgrunnur hjónanna Ragnheiðar Kristínar Björnsdóttur og Elísar Kjartanssonar varðandi börn er fjölbreyttur því þau eiga þrjú börn, eitt ættleidd, annað eignuðust þau með tæknilegri hjálp og eitt kom án hjálpar. Þá eru þau með eitt barn í fóstri. Ragnheiður Kristín og Elís ætla að deila þessari reynslu með áhugasömum eina kvöldstund.
Erindi Ragnheiðar Kristínar og Elísar fer fram í húsnæði Framvegis, Skeifunni 11b, Reykjavík, 3. hæð, n.k. fimmtudag 30. mars n.k. kl 20:00.
Þeim sem eiga ekki heimangengt er boðið upp á erindið á netinu. Ókeypis er fyrir félagsmenn en kostar kr.1000 fyrir utanfélagsmenn.
Lesa meira
Leit
Gerast félagi
Íslensk ættleiðing er eina félagið á Íslandi sem hefur löggildingu stjórnvalda til að annast milligöngu um ættleiðingar erlendis frá. Félagið var stofnað af áhugafólki um málefnið árið 1978 og hefur reksturinn lengst af verið borinn uppi af sjálfsaflafé og miklu sjálfboðastarfi félagsmanna.
Árgjald Íslenskrar ættleiðingar er 4.900 krónur fyrir einstakling.