Fréttir

Fjölskyldumorgun

Fjölskyldmorgnar Íslenskrar ættleiðingar eru haldnir annan hvern fimmtudag frá kl. 10:00 til 12:00 í húsakynnum félagsins að Skipholti 50 b. Þessi litla stund er á margan hátt mikilvæg. Mikilvægur vettvangur fyrir foreldra og börn þeirra að hittast og njóta samvistar við hvert annað. Ekki síður er mikilvægt fyrir foreldrana að sjá börn hvors annars vaxa, þroskast og dafna. Auk þess gefst kjörið tækifæri að bera saman reynslu sína og gefa og þiggja ráð. Fyrir börnin er þetta mikilvæg stund að fá tækifæri að hittast, kynnast og leika sér saman. Starfsfólk skrifstofu Íslenskrar ættleiðingar, Kristinn, Ragnheiður og Lárus eru á staðnum til skrafs og ráðagerða. Ekki má gleyma mikilvægi þess fyrir starfsfólkið að fá að hitta ykkur foreldrana ásamt börnunum og fá að fylgjast með þeim. Algjör forréttindi. Við hvetjum foreldra að koma með börnin á fjölskyldumorgna félagsins
Lesa meira

Félagið okkar

Kynning á þjónustu og starfi Íslenskrar ættleiðingar. Starf og þjónusta ÍÆ er umfangsmikil, hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum. Starfið og þjónustan miðar að því að sinna félagsmönnum eins vel og kostur er enda eru þeir félagið. Mikilvægt er að hafa í huga að allir félagsmenn eru jafn mikilvægir hvar svo sem þeir eru staddir í ættleiðingarferlinu. Eitt af markmiðum ÍÆ er að tryggja góða faglega þjónustu og ekki síst gott aðgengi að starfsfólki félagsins. Það er mikilvægt að félagsmenn séu vel upplýstir um þjónustu félagsins, því verður á fyrsta fyrirlestri ársins farið í saumanna á þjónustunni. Kynningin fer fram í hátíðarsal Tækniskólans við Háteigsveg, miðvikudaginn 28.janúar, klukkan 20:00. Þeim sem eiga ekki heimangengt er boðið upp á kynninguna á netinu. Skráning er á isadopt@isadopt.is Félagsmenn ÍÆ og aðrir áhugasamir um málefni ættleiðinga eru hvattir til að mæta.
Lesa meira

Svæði