Fáðu fréttir og tilkynningar frá ÍÆ á netfangið þitt.
Flýtilyklar
Fréttir
Morgunblaðið - Frumættleiðingum fjölgaði, flest börn ættleidd frá Tékklandi
08.10.2020
Frumættleiðingar frá útlöndum voru níu í fyrra eða talsvert fleiri en árin tvö á undan þegar þær voru einungis fjórar hvort ár. Frumættleiðingar frá útlöndum höfðu aldrei verið jafn fáar á einu ári og á árunum 2017 og 2018. Frumættleiðing merkir ættleiðingu á barni sem ekki er barn maka umsækjanda. Þetta kemur fram í frétt Hagstofu Íslands.
"Fyrir utan árin 2017-2018 voru frumættleiðingar frá útlöndum fæstar 1992 þegar einungs fimm börn voru ættleidd erlendis frá. Flest börn voru ættleidd frá útlöndum árið 2005 þegar 41 frumættleiðing átti sér stað. Undanfarin ár hafa flest ættleidd börn verið frá Tékklandi og árið 2019 voru einnig flestar ættleiðingar þaðan eða sjö," að sögn Hagstofunnar.
Lesa meira
mbl.is - 49 börn ættleidd í fyrra
07.10.2020
Alls voru 49 börn ættleidd á Íslandi árið 2019. Þetta eru aðeins fleiri en 2018 en þá voru ættleiðingar 46. Árið 2019 voru stjúpættleiðingar 31 en frumættleiðingar 18.
Lesa meira
Visir.is - Stærsta ár í ættleiðingum síðan 2013
07.10.2020
49 ættleiðingar voru á Íslandi árið 2019. Þetta eru aðeins fleiri en árið 2018 en þá voru ættleiðingar 46. Árið 2019 voru stjúpættleiðingar 31 en frumættleiðingar 18. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofunnar.
Lesa meira
Leit
Gerast félagi
Íslensk ættleiðing er eina félagið á Íslandi sem hefur löggildingu stjórnvalda til að annast milligöngu um ættleiðingar erlendis frá. Félagið var stofnað af áhugafólki um málefnið árið 1978 og hefur reksturinn lengst af verið borinn uppi af sjálfsaflafé og miklu sjálfboðastarfi félagsmanna.
Árgjald Íslenskrar ættleiðingar er 4.900 krónur fyrir einstakling.