Fáðu fréttir og tilkynningar frá ÍÆ á netfangið þitt.
Flýtilyklar
Fréttir
Best Practises in Adoption
13.06.2019
Dagana 19.-21.september verður haldin ættleiðingarráðstefna á Íslandi á vegum Nordic Adoption Council (NAC). Öll ættleiðingarfélög á norðurlöndunum standa að regnhlífasamtökunum NAC, ásamt tveimur foreldrafélögum ættleiddra barna. Samtökin standa fyrir ráðstefnu á tveggja ára fresti og flakkar hún á milli norðurlandanna. Að þessu sinni skipuleggur Íslensk ættleiðing ráðstefnuna og leggur upp með meginþemað Best Practises in Adoption, með þemanu verður reynt að draga fram það góða starf sem unnið er í ættleiðingamálaflokknum og læra hvert af öðru.
Á ráðstefnunni koma fram erlendir og innlendir fyrirlesarar með sérþekkingu á sviði ættleiðinga og er ráðstefnan opin öllum þeim sem hafa áhuga á þessum málaflokki. Fyrirlesarar verða Dr. David Brodzinsky doktor í sálfræði, Päivi Pietarila félagsráðgjafi hjá Save the Children Finland og doktorsnemi, Ondřej Bouša yfirsálfræðingur hjá miðstjórnvaldi Tékklands, Irene Parssinen-Hentula formaður NAC, Haukur Guðmundsson ráðuneytisstjóri Dómsmálaráðuneytisins og Kristinn Ingvarsson framkvæmdastjóri Íslenskrar ættleiðingar.
19. september
Dagskráin hefst á vinnustofu með Dr. David Brodzinsky um Specific needs Adopted Youth, milli kl. 14:00 – 17:00 í Veröld, húsi Vigdísar.
Um kvöldið verður svo sérstök sýning á finnsku heimildarmyndinni Moonchild / Kuutyttö eftir leikstjórann Önnu Korhonen. Myndin gefur innsýn inní hugarheim taílenskra mæðra sem hafa gefið frá sér barn til ættleiðingar. Myndin verður sýnt í Háskólabíói kl. 20:30 og verður Anna Korhonen viðstödd sýninguna og verður boðið uppá umræður eftir hana.
Vinnustofan, sýningin Moonchild og ráðstefnan er opin fyrir öllum þeim sem hafa áhuga á ættleiðingum.
20. september
Ráðstefnan Best Practises in Adoption hefst formlega með setningarávarpi forseta Íslands,
kl. 08:30 – 16:30 í Veröld, húsi Vigdísar.
Íslensk ættleiðing er eina ættleiðingarfélagið á Íslandi og hefur löggildingu frá Dómsmálaráðuneytinu til að annast milligöngu um ættleiðingar erlendis frá. Starf ættleiðingafélags er margþætt og tekur mið af Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, Haagsamningnum um vernd barna og samvinnu um ættleiðingu milli landa og miðast jafnframt við siðareglur Nordic Adoption Council, siðareglur EurAdopt og siðareglur Íslenskrar ættleiðingar.
Meginmarkmið félagsins eru þrjú: að aðstoða þá sem vilja ættleiða börn af erlendum uppruna og ávallt þannig að hagsmunir barnsins sitji í fyrirrúmi. Að stuðla að velferð kjörfjölskyldna og að vinna að velferðamálum barna erlendis.
Hægt er að skoða meiri upplýsingar og skrá sig á ráðstefnuna og viðburði í kringum hana á http://www.isadopt.is/is/nac
Lesa meira
Stjórnarfundur 04.06.2019
04.06.2019
1. Fundargerð síðasta stjórnarfundar
2.Mánaðarskýrslur mars, apríl og maí
3. Heimsókn til Kólumbíu og Dóminíska lýðveldisins
4. Heimsókn til Tékklands
5. Fundur NAC með miðstjórnvöldum Norðurlanda í Helsinki
6. NAC ráðstefna
7. Starfsdagur stjornar og skrifstofu ÍÆ
8. Önnur mál
a. Romani Studies Conference 2019
b. Fundur með Utanríkisráðuneyti
c. Fundur með Velferðar- og barnamálaráðuneyti
Lesa meira
ruv.is - Héldu sýningu á börnum til ættleiðingar
23.05.2019
Viðburður þar sem börn til ættleiðingar á aldrinum 4 til 17 ára stigu á svið tískupalls í brasilískri verslunarmiðstöð hefur vakið hörð viðbrögð og verið líkt við sölu dýra eða þræla.
Hann bar heitið „Ættleiðing á tískupallinum“ og fór fram í borginni Cuibabá en en samtök um ættleiðingar stóðu fyrir þessari uppákomu. Markmiðið var að sögn skipuleggjenda að vekja athygli á börnum og unglingum til ættleiðingar að því segir í frétt AFP.
Lesa meira
Leit
Gerast félagi
Íslensk ættleiðing er eina félagið á Íslandi sem hefur löggildingu stjórnvalda til að annast milligöngu um ættleiðingar erlendis frá. Félagið var stofnað af áhugafólki um málefnið árið 1978 og hefur reksturinn lengst af verið borinn uppi af sjálfsaflafé og miklu sjálfboðastarfi félagsmanna.
Árgjald Íslenskrar ættleiðingar er 4.900 krónur fyrir einstakling.