Fáðu fréttir og tilkynningar frá ÍÆ á netfangið þitt.
Flýtilyklar
Fréttir
Skólaaðlögun ættleiddra barna og sérstaða þeirra á fyrstu árum skólagöngunnar.
26.04.2019
Næsta fræðsla á vegum Íslenskrar ættleiðingar verður laugardaginn 4.maí klukkan 11.00 - 12.30 í húsnæði Framvegis, Skeifunni 11, Reykjavík, 3.hæð.
Þá mun Ingibjörg Margrét Magnúsdóttir grunnskólakennari, með MA í sérkennslu halda erindi sem heitir "Skólaaðlögun ættleiddra barna og sérstaða þeirra á fyrstu árum skólagöngunnar."
Ingibjörg Magnúsdóttir er móðir tveggja ættleiddra stúlkna, 12 ára og 16 ára. Fjölskyldan er búsett á Akureyri. Hún er kennari að mennt, útskrifaðist sem grunnskólakennari frá KHÍ árið 2006 og fór svo nokkrum árum seinna í Meistaranám sem hún lauk árið 2014 með MA gráðu í Menntavísindum með áherslu á sérkennslu.
Í fyrirlestrinum verður stiklað í gegnum þann hluta rannsóknar Ingibjargar sem snýr að; ˶…ættleidd börn hafa með sér aukaferðatösku í gegnum lífið“.
Þjónustuþörf ættleiddra barna við upphaf grunnskóla, sem snýr að skólaaðlögun ættleiddra barna og sérstöðu þeirra almennt fyrstu ár skólagöngunnar. Rannsóknin sem um ræðir var unnin sem hluti af 60 eininga Meistaraprófsritgerð við Háskólann á Akureyri. Jafnframt mun Ingibjörg ræða hvað hefur komið nýtt í ljós síðan hún lauk sínu námi 2014, fara yfir þá þætti sem mörg ættleidd börn virðast eiga sameiginlega þegar kemur að skólagöngunni. Hvað hægt sé að gera til að auka vellíðan ættleiddra barna í skólasamfélaginu ásamt því að skoða hvað gerist við tilfærslu á milli skólastiga, hverju þurfi að huga að við þau tímamót.
Erindi þetta ætti að höfða til flestra, ef ekki allra félagsmanna þar sem að annað hvort á fólk barn á skólaaldri eða mun eignast barn á skólaaldri.
Við minnum einnig á að erindi okkar eru öllum opin og fólki er velkomið að benda skólum/kennurum barna sinna á þetta erindi. Þessi fyrirlestur er kennurum og starfsmönnum skóla að kostnaðarlausu, sem og félagsmönnum.
Lesa meira
Hvernig styrkja má sjálfsmynd og sjálfstraust barna og unglinga
02.04.2019
Hvaða þættir auka og viðhalda sjálfstrausti og hvað þarf að varast.
Fræðslan byggir á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar en einnig núvitund.
Fyrirlesari er Anna Sigríður Jökulsdóttir, hún hefur starfað sem sálfræðingur frá 2010, fyrst í grunnskólum við greiningar og ráðgjöf en starfar nú á Kvíðameðferðarstöðinni. Í hartnær áratug hefur hún haldið fræðsluerindi um sjálfsmynd barna og unglinga fyrir foreldrahópa, námskeið fyrir kennara og nýlega bættist við fræðsla fyrir nemendur. Anna Sigríður lýkur sérfræðinámi í hugrænni atferlismeðferð í vor.
Fræðslan hefst klukkan 20.00 fimmtudaginn 11. apríl og er haldin í Framvegis, Skeifunni 11, Reykjavík, 3.hæð.
Fræðslan er öllum opin, frítt er fyrir félagsmenn en kostar 2900 kr fyrir aðra.
Lesa meira
Leit
Gerast félagi
Íslensk ættleiðing er eina félagið á Íslandi sem hefur löggildingu stjórnvalda til að annast milligöngu um ættleiðingar erlendis frá. Félagið var stofnað af áhugafólki um málefnið árið 1978 og hefur reksturinn lengst af verið borinn uppi af sjálfsaflafé og miklu sjálfboðastarfi félagsmanna.
Árgjald Íslenskrar ættleiðingar er 4.900 krónur fyrir einstakling.