Fáðu fréttir og tilkynningar frá ÍÆ á netfangið þitt.
Flýtilyklar
Fréttir
Fréttabréf apríl 2018
30.04.2018
* Vel heppnað afmælismálþing
* Ávarp forseta Íslands
* Í 40 ár - Saga Íslenskrar ættleiðingar
* Therapeutic Parenting and adoption
* Ímyndunaraflið og af hverju skiptir það ættleidd börn máli?
* Líðan fullorðinna ættleiddra á Íslandi
* Þjónustusamningur
* Afmælisgjöf frá Foreldrafélagi ættleiddra barna
* Nýr félagsráðgjafi til starfa
* Skólaaðlögun ættleiddra barna
* Dominíkanska lýðveldið
* Viðeyjarferð
* Útilega í júní
* Aðalfundur Íslenskrar ættleiðingar
* Reynslusaga
Lesa meira
Útilega 29.júní - 1.júlí - aflýst
30.04.2018
Löng hefð er fyrir útilegum á vegum félagsins, en síðustu ár hefur þátttaka í
þeim verið dræm og hefur skemmtinefndin ekki staðið fyrir útilegum uppá
síðkastið. Nú í sumar ætlar nefndin hins vegar að reyna að blása lífi í þessa
fallegu hefð.
Helgin 29.júní til 1.júlí hefur orðið fyrir valinu og munu félagsmenn flykkjast í
Brautartungi í Lundarreykjadal.
Félagsheimilið hefur verið vinsæll staður fyrir ættarmót, brúðkaup og aðra
viðburði en í húsinu er stór salur sem rúmar um 200 manns í sæti. Öðru megin
salarins er svið en hinumegin minni salur og rúmgott eldhús. Á efri hæð er
setustofa með nokkrum sófum og sófaborðum. Sundlaug á staðnum, aðeins fyrir
okkur og salur sem að um 30 manns geta gist í ef veður er með þeim hætti að fólk
þarf að komast í skjól. Að ógleymdu tjaldsvæði sem við verðum með út af fyrir
okkur þessa helgi.
Búið er að bóka Grillvagninn til að sjá um sameiginlegan kvöldverð á
laugardeginum og vonandi náum við að setja saman skipulagða dagskrá með
skemmtun og fjöri yfir helgina. Við óskum hér með eftir áhugasömum sem vilja
koma að því að skipuleggja þessa helgi og hafa tök á því að leggja sitt af mörkum.
Við vitum að í félaginu okkar eru margir hæfileikarríkir einstaklingar sem gætu
komið að því að gera þessa helgi skemmtilega og minnistæða.
Lesa meira
Viðeyjarferð 19.maí
30.04.2018
Skemmtinefnd Íslenskrar ættleiðingar stendur fyrir fjölskylduferð í Viðey
Laugardaginn 19. maí. Ætlunin er að hittast á Skarfabakka og taka ferjuna í
Viðey klukkan 10.15. Byrjum á því að leika okkur á rólóvellinum og leikum okkur
jafnvel saman í skipulögðum leikjum. Næst göngum við saman að fjörunni þar
sem Viðeyjarnaust stendur. Þar ætlum við að borða saman nesti, sem hver og
einn kemur með fyrir sig, skoða lífið í fjörunni og hafa gaman í góðum félagsskap.
Ef veður er með þeim hætti að ekki er hægt að sitja úti, þá er aðstaða inni í
Viðeyjarnausti til að setjast og borða. Hver og einn sér um að greiða fyrir sig og
sína í ferjuna og koma með nesti.
Skráning er hafin á heimasíðu Íslenskrar Ættleiðingar og við biðjum fólk
vinsamlegast um að skrá sig og sína, þannig að við getum gefið ferjustjóranum
einhverja mynd af því hvað verða margir á ferðinni þennan dag. Leiðinlegt ef ekki
verður pláss fyrir alla að komast yfir, enda gerum við ráð fyrir góðri mætingu
félagsmanna á þennan skemmtilega viðburð. Áætluð heimferð er 14.30, en ferðir
eru reglulega tilbaka yfir daginn. Hægt er að skoða áætlun ferjunnar hér ef fólk
vill nýta sér annan ferðatíma tilbaka: http://borgarsogusafn.is/is/videy/ferjan
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest í góðum félagsskap þann 19. maí.
Skráning hér
Lesa meira
Leit
Gerast félagi
Íslensk ættleiðing er eina félagið á Íslandi sem hefur löggildingu stjórnvalda til að annast milligöngu um ættleiðingar erlendis frá. Félagið var stofnað af áhugafólki um málefnið árið 1978 og hefur reksturinn lengst af verið borinn uppi af sjálfsaflafé og miklu sjálfboðastarfi félagsmanna.
Árgjald Íslenskrar ættleiðingar er 4.900 krónur fyrir einstakling.