Fáðu fréttir og tilkynningar frá ÍÆ á netfangið þitt.
Flýtilyklar
Fréttir
Visir.is - Heldur áfram að leita að uppruna Íslendinga: „Það er svo margt sem þarf að smella“
01.09.2017
„Ég hafði ekki miklar áhyggjur af því fyrirfram að það yrði erfitt að fá þátttakendur. Aðallega af því að umsóknirnar skiptu tugum síðast, þótt fólk vissi ekkert hvernig útkoman gæti orðið,“ segir Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, sem snýr aftur með þáttinn Leitin að upprunanum í haust.
Lesa meira
Sumargrill Íslenskrar ættleiðingar
18.08.2017
Sunnudaginn 27.ágúst kl 12:00 til 14:00 ætlum við að grilla pylsur í Gufunesbæ í Grafarvogi. Drykkir verða einnig í boði. Gufunesbær er með stórt útivistarsvæði með leiksvæði fyrir börnin og góða grillaðstöðu. Frítt verður fyrir félagsmenn.
Lesa meira
Barna- og unglingastarf
17.08.2017
Í haust ætlar Íslensk ættleiðing af stað með barna- og unglingastarf.
Markmiðið með starfinu er að vinna með sjálfsmynd og skapa vettvang fyrir börn og unglinga til að hitta jafnaldra sína með sambærilega reynslu að baki. Lagt verður upp með að hafa samverustundirnar skemmtilegar með fjölbreyttri afþreyingu. Einnig verður unnið með verkefni og leiki þar sem áhersla verður lögð á vináttu, samskipti, hópefli, sjálfstraust og sjálfsmynd. Börnunum verður skipt upp í tvo hópa, 8-11 ára og 12-14 ára.
Þeir sem stýra verkefninu eru Rut Sigurðardóttir, félagsráðgjafi og starfsmaður Íslenskrar ættleiðingar og Ragnheiður Helgadóttir frístundaleiðbeinandi og kennaranemi. Rut hefur mikla reynslu í vinnu með börnum, bæði á vegum félagsþjónustu og Barnaverndar. Ragnheiður er ættleidd frá Sri Lanka og hefur mikla reynslu af starfi með börnum og unglingum.
Sambærileg dagskrá verður fyrir báða hópana. Í fyrsta tímanum ætlum við að hittast í Spilavinum, byrja á að kynnast hvert öðru áður en við fáum spilakennslu. Borðum svo saman áður en haldið verður heim á leið. Annar tíminn verður í jóga en þá erum við búin að til liðs við okkur jógakennara sem hefur reynslu af því að vinna með börnum. Þá ætlum við einnig að borða saman. Þriðji tíminn verður ákveðinn í samráði við hópana og sá tími nýttur einnig til að leggja drög af starfinu á vorönn í samvinnu við hópinn.
Dagsetningar fyrir yngri hóp (8-11 ára) eru eftirfarandi: 14. september, 12. október og 16. nóvember. Við verðum saman frá klukkan 17.30 – 19.30. Dagsetningar fyrir eldri hóp (12-14 ára) eru eftirfarandi: 18. september, 16. október og 20. nóvember. Við verðum saman frá klukkan 17.30 – 19.30.
Þátttökugjald er 3000 krónur fyrir félagsmenn en 12.000 krónur fyrir aðra.
Skráning er á heimasíðu Íslenskrar ættleiðingar og lokadagur skráningar er 7. september.
Ykkur er velkomið að hafa samband við rut(hjá)isadopt.is eða í síma 5881480 ef þið viljið frekar upplýsingar.
Lesa meira
Leit
Gerast félagi
Íslensk ættleiðing er eina félagið á Íslandi sem hefur löggildingu stjórnvalda til að annast milligöngu um ættleiðingar erlendis frá. Félagið var stofnað af áhugafólki um málefnið árið 1978 og hefur reksturinn lengst af verið borinn uppi af sjálfsaflafé og miklu sjálfboðastarfi félagsmanna.
Árgjald Íslenskrar ættleiðingar er 4.900 krónur fyrir einstakling.