Fréttir

Afgreiðsluhraði í Kína

Afgreiðsluhraði í Kína
Kínverska ættleiðingarmiðstöðin (CCCWA) hefur tilkynnt að umsækjendur sem sóttu um til og með 18. desember 2006 hafi verið paraðir við barn. Að þessu sinni var unnið úr umsóknum sem bárust frá 15. desember fram til 18. desember, eða umsóknir sem bárust á 4 dögum.
Lesa meira

Hamingjustund

Hamingjustund
Nú í nótt sameinaðist fjölskylda í Jinan héraði í Kína. Bylgja og Guðjón fóru ásamt eldri syni sínum Jónasi og systur Bylgju og foreldrum Guðjóns þangað í lok nóvember. Eftir ævintýralegt ferðalag voru allir komnir á heilu og höldnu til Jinan og biðu stóru stundarinnar. Það var dásamlegt þegar fjölskyldan sameinaðist. Arnar Yang er flottur og duglegur strákur og á góða og sterka fjölskyldu. Þeir bræðurnir náðu strax vel saman og er eins og þeir hafi alltaf verið saman. Umsókn Guðjóns og Bylgju var móttekin í Kína 14. nóvember 2013 og voru þau pöruð við Arnar Yang 4. ágúst 2014. Þau voru því á biðlista hjá CCCWA í rúma átta mánuði. Þetta er tíunda fjölskyldan sem sameinast með milligöngu Íslenskrar ættleiðingar á þessu ári. Nú hafa 175 börn verið ættleitt frá Kína til Íslands. Af þeim eru 51 barn ættleidd af lista yfir börn með skilgreindar þarfir.
Lesa meira

Þjónustukönnun 2014

Þjónustukönnun Íslenskrar ættleiðingar (ÍÆ) var send á alla þá sem höfðu farið í gegnum ættleiðingarferlið og ættleitt á undanförnum tveim árum. Könnunin innihélt lokaðar spurningar, þar sem þátttakendur þurftu að haka við þann valmöguleika sem átti best við, og opnar spurningar. Meginmarkmið þjónustukönnunarinnar var að kanna viðhorf til þjónustu og viðmóts starfsmanna Íslenskrar ættleiðingar en einnig var leitast við að kanna ánægju með þjónustu skrifstofu sýslumannsins í Reykjavík, barnaverndar og Barnaspítala Hringsins. Tilgangur könnunarinnar var að kanna ánægjuna í ferlinu öllu, allt frá fyrsta viðtali á skrifstofu ÍÆ og þar til ættleiðingarferlinu lýkur. Niðurstöður gáfu til kynna að flestir voru mjög ánægðir með fyrsta viðtalið hjá ÍÆ og fannst námskeiðið “Er ættleiðing fyrir mig?” nýtast eftir að heim var komið. Almennt voru þátttakendur ánægðir með tíman sem það tók ÍÆ að afgreiða forsamþykkis umsóknina og þær upplýsingar sem fengust varðandi forsamþykkisferlið. Viðhorf þátttakenda til þjónustu sýslumannsembættisins í Reykjavík var neikvæðara. Þátttakendur voru almennt óánægðir með tíman sem það tók skrifstofu sýslumanns að afgreiða umsóknina og óánægðari með þær upplýsingar sem fengust varðandi forsamþykkisferlið. Þegar spurt var um ánægju með viðmót starfsmanna ÍÆ, sýslumanns og barnaverndar virðast flestir vera ánægðastir með viðmót starfsmanna skrifstofu ÍÆ. Áður en farið var til upprunalandsins og forsamþykki hafði fengist hafði lítill hluti þátttakenda nýtt sér þjónustu Barnaspítalans og voru allir ánægðir eða mjög ánægðir með það viðmót sem þeir höfðu fengið þar. Flestir sem svöruðu voru einnig ánægðir með námskeiðið “Fyrstu skrefin” og meirihluti sagði að Ferðahandbókin hefði nýst sér vel. Þegar kom að undirbúningi fyrir ferðina til upprunalandsins sagðist minnihluti þátttakenda hafa kosið meiri undirbúning vegna ferðarinnar. Öllum fannst þeir vel eða mjög vel upplýstir um umsóknarferlið til upprunalandsins og það sama átti við um ánægju með upplýsingar sem fengust frá starfsfólki ÍÆ varðandi undirbúning ferðarinnar. Eftir að heim var komið þurfa allir að hitta lækni á Barnaspítala Hringsins a.m.k. einu sinni. Allir sem svöruðu voru mjög ánægðir með þá þjónustu sem þeir fengu þar, nema einn sem var ánægður. Þátttakendur voru einnig almennt ánægðir með viðmót félagsráðgjafa sem sá um eftirfylgni. Nánast allir þátttakendur sögðust vera ánægðir eða mjög ánægðir með þá þjónustu sem þeir fengu frá starfsfólki ÍÆ í öllu ferlinu, engin var óánægður.
Lesa meira

Svæði