Fáðu fréttir og tilkynningar frá ÍÆ á netfangið þitt.
Flýtilyklar
Fréttir
DV - „Við erum komin heim!!!“ Fjölskyldan komin frá Kólumbíu og sameinuð á Íslandi
07.12.2012
Friðrik Kristinsson og Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir eru loksins komin heim frá Kólumbíu með dætur sínar þær Helgu Karólínu og Birnu Salóme. Þau greina frá þessu á Facebook síðu fjölskyldunnar. Þau hafa verið föst í Kólumbíu frá því í desember fyrir ári síðan en þá komu þau fyrst til landsins í þeim tilgangi að ættleiða stúlkurnar tvær. Eitthvað fór úrskeiðis þegar kom að pappírsvinnunni með þeim afleiðingum að þau þurftu að reka mál sitt fyrir réttarkerfinu í Kólumbíu. Stór veisla var haldin í tilefni af komu fjölskyldunnar heim til Íslands. Í upphafi færslunnar á Facebook segir einfaldlega: „Við erum komin heim!!!!“ Ljóst er að þungu fargi er af þeim létt.
Lesa meira
VÍSIR - Kólumbíumartröðin á enda:
07.12.2012
Hjónin Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir og Friðrik Kristinsson eru komin heim með dætur sínar tvær, Helgu Karólínu og Birnu Salóme, eftir ársdvöl í Kólumbíu. Hjónin ættleiddu stúlkurnar en það reyndist þrautin þyngri því ættleiðingarmálið fór fyrir dómstóla, þar sem það hefur verið í eitt ár. Hjónin sögðu í júní á þessu ári að baráttan við yfirvöld í landinu hafi verið martröð.
Lesa meira
Aðalfundur 2012 verður 27. desember
06.12.2012
Stjórn Íslenskrar ættleiðingar, boðar til aðalfundar sem haldinn verður að hátíðarsal Fjöltækniskóla Íslands (gamla Sjómannaskólanum), Háteigsvegi, 27. desember 2012, kl. 20.
Fundurinn var áður boðaður þann 28. mars en var frestað vegna óvissu um gerð þjónustusamnings við Innanríkisráðuneytið.
Lesa meira
Leit
Gerast félagi
Íslensk ættleiðing er eina félagið á Íslandi sem hefur löggildingu stjórnvalda til að annast milligöngu um ættleiðingar erlendis frá. Félagið var stofnað af áhugafólki um málefnið árið 1978 og hefur reksturinn lengst af verið borinn uppi af sjálfsaflafé og miklu sjálfboðastarfi félagsmanna.
Árgjald Íslenskrar ættleiðingar er 4.900 krónur fyrir einstakling.