Fáðu fréttir og tilkynningar frá ÍÆ á netfangið þitt.
Flýtilyklar
Fréttir
Aðalfundur 06.03.2018
06.03.2018
1. Skýrsla stjórnar. 2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagður fram til samþykktar. 3. Kjör stjórnar. 4. Ákvörðun árgjalds. 5. Breytingar á samþykktum félagsins. 6. Önnur mál
Lesa meira
Aðalfundur 2018
06.03.2018
Íslensk ættleiðing minnir á aðalfund félagsins í kvöld kl. 20:00 á Hótel Hilton.
Samkvæmt samþykktum félagsins er dagskrá fundarins eftirfarandi.
1. Skýrsla stjórnar
Formaður Íslenskrar ættleiðingar, Elísabet Hrund Salvarsdóttir flytur skýrslu um síðastliðið starfsár.
2. Ársreikningur 2017
Ársreikningur síðastliðins árs lagður fram. Farið yfir helstu kennitölur í ársreikningnum og hann borinn upp til samþykktar.
3. Kjör stjórnar
Að þessu sinni eru þrjú sæti til stjórnar félagsins laus. Fjórir frambjóðendur hafa gefið kost á sér og þarf því að kjósa á milli þeirra. Frambjóðendur voru kynntir í síðasta fréttabréfi og er hægt að skoða kynninguna hér.
Þeir sem hafa ekki tök á að koma á aðalfundinn geta gefið umboð til að koma atkvæði sínu til skila á fundinum.
Umboð er hægt að nálgast hér.
4. Ákvörðun árgjalds
Aðalfundur leggur til upphæð árgjalds og lagt fram til samþykktar.
5. Lagabreytingar
Breytingar á samþykktum þarf að skila inn fyrir 31.01. Engin breyting var lögð fram að þessu sinni.
6. Önnur mál.
Lesa meira
Leit
Gerast félagi
Íslensk ættleiðing er eina félagið á Íslandi sem hefur löggildingu stjórnvalda til að annast milligöngu um ættleiðingar erlendis frá. Félagið var stofnað af áhugafólki um málefnið árið 1978 og hefur reksturinn lengst af verið borinn uppi af sjálfsaflafé og miklu sjálfboðastarfi félagsmanna.
Árgjald Íslenskrar ættleiðingar er 4.900 krónur fyrir einstakling.