Fáðu fréttir og tilkynningar frá ÍÆ á netfangið þitt.
Flýtilyklar
Fréttir
Afgreiðsluhraði í Kína
11.03.2015
Kínverska ættleiðingarmiðstöðin (CCCWA) hefur tilkynnt að umsækjendur sem sóttu um til og með 25. desember 2006 hafi verið paraðir við barn. Að þessu sinni var unnið úr umsóknum sem bárust frá 19. desember fram til 25. desember, eða umsóknir sem bárust á 6 dögum.
Lesa meira
BIÐLISTAHITTINGUR KL 13:00 SUNNUDAGINN 15.MARS
09.03.2015
MÆTUM ÖLL.
Þeir sem eru á biðlista hafa ákveðið að hittast 15. hvers mánaðar. Næsti hittingur verður kl. 13:00 sunnudaginn 15. mars í húsnæði Íslenskrar ættleiðingar Skipholti 50 b, annari hæð til hægri. Eins og áður er um að ræða óformlegan hitting til að skapa tækifæri til að hittast, spjalla saman, læra hvort af öðru, styðja hvort annað og hafa gaman saman.
Frekari upplýsingar er hægt að fá hjá Ragnheiði á skrifstofu félagsins í síma 588 14 80 eða isadopt@isadopt.is.
Lesa meira
Sendinefnd frá Tékklandi
08.03.2015
Daganna 3.-5. mars heimsótti sendinefnd tékkneska miðstjórnvaldsins Íslenska ættleiðingu. Heimsóknin hófst með fundi sendinefndarinnar með starfsmönnum félagsins á skrifstofunni. Fundurinn var fróðlegur fyrir báða aðila en þar var farið yfir helstu breytingar sem hafa orðið síðan sendinefnd Íslenskrar ættleiðingar heimsótti Tékkland síðastliðið sumar.
Að fundinum loknum var leikskólinn Hof heimsóttur. Á leikskólanum er drengur sem er ættleiddur frá Tékklandi og var markmiðið með heimsókninni að gefa miðstjórnvaldinu innsýn í leikskólastarf á Íslandi. Þær voru heillaðar af starfinu og þótti mikið til um metnaðarfullt faglegt starf sem fram fer á Hofi.
Lesa meira
Leit
Gerast félagi
Íslensk ættleiðing er eina félagið á Íslandi sem hefur löggildingu stjórnvalda til að annast milligöngu um ættleiðingar erlendis frá. Félagið var stofnað af áhugafólki um málefnið árið 1978 og hefur reksturinn lengst af verið borinn uppi af sjálfsaflafé og miklu sjálfboðastarfi félagsmanna.
Árgjald Íslenskrar ættleiðingar er 4.900 krónur fyrir einstakling.