Umsókn í Kína

Með umsókn til Kína þurfa eftirfarandi gögn að fylgja:

  • Bréf frá Utanríkisráðuneytinu
  • Umsókn um ættleiðingu á barni frá Kína
  • Efnisyfirlit
  • Bréf frá umsækjendum
  • Vegna fráfalls / Guardian statement
  • Fæðingarvottorð
  • Hjúskaparvottorð
  • Sakavottorð
  • Atvinnuvottorð
  • Tekju og eignavottorð
  • Læknisvottorð
  • Umsögn félagsráðgjafa - ekki eldra en ársgömul
  • Forsamþykki
  • Ljósmyndir
  • 3 meðmælabréf
  • Staðfesting á að umsækjendur hafi sótt undirbúningsnámskeið fyrir ættleiðingu
  • Staðfest ljósrit af vegabréfum
  • Stimpill frá kínverska sendiráðinu
 
 
 
_____
 
 

Þegar umsækjendur hafa safnað öllum skjölum fer skrifstofa ÍÆ yfir þau. ÍÆ gefur sér 5 daga til að fara yfir umsóknina. Þá láta umsækjendur löggiltan þýðanda þýða umsóknina yfir á ensku. 

Þegar umsóknin hefur verið þýdd er komið með umsóknina á skrifstofu ÍÆ. ÍÆ útbýr fylgiblað og staðfestir umsóknina með undirskrift. Því næst fara umsækjendur með umsóknina og fylgiblaðið og láta notarius publicus stimpla hana hjá sýslumannsembættinu. Mikilvægt er að báðir aðilar fari með umsóknina til sýslumannsembættisins þar sem verið er að staðfesta undirskrift beggja aðila. 

Þegar því líkur er farið með umsóknina í utanríkisáðuneytið til þess að fá apostille staðfestingarstimplun á umsóknina.

Þá er fenginn staðfestingarstimpill hjá sendiráði Kína á umsóknina. 

Umsóknargjald ÍÆ er greitt og umsóknin er send til Kína.

Í Kína þarf að greiða skráningargjald og þýðingargjald þegar umsóknin er send þangað.
Sjá þjónustugjöld ÍÆ 

Áríðandi er að nöfn umsækjenda séu skrifuð á sama hátt í vegabréfunum og á öllum skjölum. Gætið þess sérstaklega á læknisvottorðum og atvinnuvottorðum.

Öll gögn, líka frá vinnuveitendum og lækni, þurfa að vera skrifuð á bréfsefni, undirrituð og stimpluð ef hægt er og mega ekki vera eldri en þriggja mánaða. Barnaverndarskýrsla má ekki vera eldri en ársgömul. Ef barnaverndarskýrslan er orðin meira en ársömul þarf að óska eftir viðbótarúttekt.

Erlend stjórnvöld geta óskað eftir ítarlegri upplýsingum eða nýjum vottorðum.  Ef svo er þá setur ÍÆ sig í samband við umsækjendur og lætur vita. 

 

 

Svæði